gaggo86

12.03.2007 01:57:54 / gaggo86

Gaggo86 komið og farið.

Jæja ég vil þakka öllum fyrir alveg hreint geggjað kvöld.

Mikið gaman að hitta alla og að það var alveg rosalega góð mæting! Framar björtustu vonum alveg hreint.

Mikið áfengi flæddi um hlöðuna og var mikið innbyrgt af því og gómsætum pizzum, en vegna mikillar ölvunar undirriaðar þá er ég ekki viss um úrslitin í kosningunum....

 

Hver vann hvað?

 

kveðja íris 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 13:27:20 / gaggo86

nú er komið að því

hæ hæ!!! hvað segið þið.....! ég vona að ég sé ekki sú eina sem er að deyja úr spenningi.
Nú erum við bara að leggja lokahönd á allt. Salurinn er að verða flottur og bjórinn kominn í kæli.
Ég vil minna alla á að koma tímanlega; klukkan 18:30!
Hlakka til að sjá alla.
Kveðja Kata

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 16:18:08 / gaggo86

hæ hæ

hæhæ!!! ég og Emma sitjum nú og hringjum í alla sem eiga eftir að borga!!! það eru 72 sem koma pottþétt og þeim fer bara fjölgandi:) ekkert smá gaman. ég hlakka bara til að sjá alla á laugadaginn. ég minni á að kommenta......það verður að skapa smá stemmingu á þessari bloggsíðu

kata


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 22:45:47 / gaggo86

Pay Time

Jæja fólk, það eru ansi margir sem eiga eftir að borga.

 Vil bara minna á að ef þáttakan er dræm í annað skipti þá er það að ég held í fyrsta skipti í sögu Gaggó Mos að ekki verði haldið rejúníon...

Hvað segir það um okkur????

Endilega gleymum öllu veseninu sem átti sér stað back in the dayz. Allir að mæta 8)

 

Hlakka til að sjá ykkur

Íris 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 14:08:11 / gaggo86

ÞÁ FER SENN AÐ LÍÐA AÐ ÞVÍ....

Nú eru aðeins nokkrir dagar í að Reunion verði að veruleika. Nú er komin sú harka í leikinn að ’87 árgangurinn verður með sitt reunion daginn áður en hin mun merkari árgangur ’86 stígur á stokk... það verða meira og minna sömu kennarar sem mæta á báða viðburðina og hefur nefndin lagt allt í sölurnar til að reunion ’86 sitji lengur í minni kennarana...(sá tími er takmarkaður vegna þess að minni kennara fer hallandi fæti sökum síhækkandi aldurs).

 

Við viljum ítreka að þeir sem ætla að mæta VERÐA að borga fyrir 3. mars. Þeir hafa út þann dag. Því að 4. mars verður að vera komin tala yfir fjölda gesta. Verðið er sem áður: 2500 KRÓNUR.

 

VINSAMLEGAST LEGGIÐ INN Á REIKNING

0315-13-149480

Kt. 160686-2009

(Emma Kjartansdóttir)

 

Kær kveðja: NEFNDIN!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 19:22:26 / gaggo86

hallo hallo

hæ hæ!!!! það er búið að færa reunionið fram um eina helgi. Ástæðan er bæði þeir aðilar sem hringdu og tilkynntu okkur að incubus tónleikarnir eru sama kvöld og líka tvíbókun sem átti sér stað.....!!!!!    

þetta kostaði það að við þurftum að gera 100 ný boðskort og ýmislegt annað sem við þurftum að stússast við þessar breytingar.....! en nú er 10 mars alveg ákveðin og ekkert sem getur breytt því.

Það er alveg ótrúlegt hvað er mikið vesen að vera árgangurinn sem útskrifast á eftir 85 árganginum. Þegar við byrjuðum að skipurleggja þetta voru nokkrir staðir sem við höfðum í huga en enginn vill fá okkur eftir það sem gerðist á síðasta reunioni. nokkur slagsmál og kiwanishúsinu rústað......! Það vill enginn trúa mér þegar ég tala um hversu prúður þessi árgangur er:(

kveðja kata   


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 15:00:24 / gaggo86

hallo hallo

Hæ Hæ.....! Man einhver eftir Nonna, var hann ekki ýmindaður vinur einhvers...! Hann fékk meira ap segja pláss í árbókina okkar he he!!!!!

  


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 13:51:11 / gaggo86

hallo hallo

Hallo hallo......! jæja nú er komin dagsetning og allt að verða klárt........! Við erum að gera boðskortin reddí fyrir sendingu........En dagsetningin er 3 marsJ Það er ekkert smá skrítið að sjá hvað margir eru fluttir úr Mosó. Það væri gaman að fá eitthvað af þessum myndum fyrir kvöldið svo hægt væri að setja á slide show.....(hvernig sem það er þá gert) Það hafa bæst tvær ungar dömur í “reuionnefnd” Þær Emma Kjartans og Elísabet Heiðdal.....:) Hljómur verður svo að spila fyrir dansiballiJ

 

 



Fyrir þá sem bara hreinlega geta ekki beðið eftir boðskorti því þeir eru svo svakalega spentir J þá ákváðum við að láta það fylgja hér................       

 

Kæri viðtakandi.

Eins og þú veist vel varst þú í hópi þeirra heppnu að fæðast á því herrans ári 1986, og enn frekar dastu í lukkupottinn þegar þú gekkst í Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar og hápunktur tilveru þinnar kann að vera sú staðreynd að þér tókst að útskrifast þaðan. Og enn virðist heppnin elta þig.

 

 



5 ár eru síðan starfslið Gaggó Mos. Kvaddi þennan stórkostlega árgang með mikinn söknuð í hjarta er hann lagði af stað til að sigra heiminn. Í tilefni þessa atburða skal efna til endurfunda, eða Reunions eins og kaninn myndi kalla það. Þessir einstöku endurfundir munu eiga sér stað að Laxnesi í Mosfellsdal Laugardaginn 3. mars og mæting er á slaginu 18:30. Boðið verður uppá almosfellskan matseðil að hætti pizzabæjar og

drykki á meðan birgðir endast en allir eru hvattir til að hafa meðferðis drykki að eigin valiJ Búist er við að úrvalslið kennara mæti einnig á staðinn og hver veit nema Gulla, skori á Siggeir í rammíslenska glímuJ Fornir tímar verða rifjaðir upp með máli og myndum og ýmiss skemmtileg atriði á dagskrá.  Síðast en ekki síst mun hinn margrómaði dúett Hljómur spila fyrir dansi kl.23:00 Og þá er mökum velkomið að slást með í för.

 

 



Til gamans má benda á að bloggsíða hefur verið opnið í tilefni af þessum stórfenglega áfanga í lífi okkar með slóðinni:

http://blog.central.is/gaggo86

 

 



 

 



Miðaverð er 2500 kr. Sem greiðast skulu fyrir 12 feb. inn á reikning

0315-13-149480

k.t 160686-2009

(Emma Kjartansdóttir)

 

 



Með von um góða þáttöku

 

 



Reuionnefnd: Kata, Emma, Íris og Beta

 

 



 

 



 

 



                                                                                                           Upplýsingar í síma:

Kata: 8238625/8965990

                                                                                                    Emma: 8661100


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 17:53:34 / gaggo86

Jæja

Þökkum gífurlegan áhuga, þetta fer allt að styttast.
Er búin að ákveða febrúar, þá ættu flestir að eiga einhvern pening og svona.

Gleðileg Jól til allra og hlakka til að sjá ykkur :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 13:22:19 / gaggo86

plan

hallo hallo...! Við erum nú búnar að skrifa boðskortin og orðnar ekkert smá spenntar. boðskortin verða samt ekki send strax en staðsetning á kvöldinu er komin:) Allt svona stórt er komið á hreint en þá er bara að plana sjálft kvöldið. ef þið eigin einhverjar myndir nennið þið þá að hafa samband....! takk takk

kata


» 12 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 12:28:15 / gaggo86

Færsla

Jæja krakkar.
Það hefur gengið hægt hjá okkur að undanförnu enda búið að vera mjög mikið að
gera hjá okkur báðum en við ætlum að taka okkur saman og plana allt á fullu í kvöld!
Vonandi setja niður dagsetningu og svo fái þið boðskort sem fyrst.

Kveðja
Íris Fríða

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 15:32:59 / gaggo86

klárlega flottasti árgangurinn

klárlega flottasti árgangurinn, við erum að fara setja inn fullt af myndum bráðum en hér er ein sem var tekin í Þórsmörk......................!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 21:22:31 / gaggo86

Halló Halló árgangur. gaggo mos 86

Jæja jæja!!!!! nú er komið að því að taka 2 verði gerð á skipulagninu hittings 86 árgangsinns í gaggo mos! Að þessu sinni eru það Íris Fríða og Þórhildur Katrín (Kata) sem sjá um undirbúninginn og er hann byrjaður á fullu. Ekki er komið föst dagsetning en hugsanleg staðsetning er komin og verður það í Mosfellsbæ!! Við stefnum á að halda þetta fyrir Jól en ekkert er víst. Það eina sem við erum vissar um er að þetta verður svaka stuð og vonumst til að hitta sem flesta og þá meinum við ALLA!!!!!! Þessi síða verður notuð svo allir geti fylgst með og komið með hugmyndir. Einnig geta allir fengið aðgang með því að hringja í Írisi S:6955770 eða Kötu S:8238625. Gaman verður ef einhverjir geta sett inn myndir og stefnum við á að gera það sem fyrst   

Takk fyrir okkur Kata og Íris Fríða  


» 5 hafa sagt sína skoðun